Ha ? Blogga..Sara Waage
Já ... uuu .... Það var rosafjör í þemavikunni búa til pappír í heila viku... hver getur beðið um eitthvað betra við tímann að gera ... hreint út sagt MAGNAÐFór svo heim til Öddu og Hejdi þá helgi. Á fjölskyldudaginn komum við hingað í skólann og fengum mat og fórumsvo rúnt um skólann og Hejdi fann pappírsstöðina þannig að við gerðum pappír líka þá ... sem var einmitt mjög gaman eða svo stálumst við Adda til að setjast niður og skárum myndir útí frauðplast og settum blek á og þrykktum á blöð ... já ...
Svo átti ég afmæli um daginn og fór einmitt heim til Ö&H á fimmtudeginum því að það var frí í skólanum á föstudeginum. Á laugardeginum (18.nóv ) var ég vakin upp með afmælissöng á Íslensku , Dönsku (báðum dönsku söngvunum) og kínverska ... og fékk morgunmat í rúmmið og PAKKA !!! fékk fullt af nammi ÍSLENSKU NAMMI!!! (sem ég á b.t.w. enþá pínu eftir af , og er mjög stolt af því ) og svo fékk ég ammælisgjöf og bréf frá Familíunni , og fékk gjöf frá Ö&H, ömmu og frá Kimmie og fékk frá Marie þegar ég kom aftur í skólann. Við notuðum daginn og átum uppáhalds kökuna mína sem að hún Hejdi missti sig aðeins í súkkulaðinu .... þá erum við líka að taka um næstum því 1cm þykkt lag af súkkulaði á kökunni og þar af leiðandi er ekki hægt að skera kökuna nema hreinlega beita valdi ... sem að var klárlega gert !!!! og átu smákökur sem vid bökuðum kvöldið áður
Annars eru núna 2 vikur í það að ég komi heim !!!!! BARA TVÆR VIKUR!
Sjitt hvað þetta líður hratt ... mér hlakkar reyndar rosalega mikið til að koma heim og hitta alla en það á eftir að vera erfitt að fara héðan ... jiii hvað það verður skrítið ... !! æjæj en ég ætla að nota tímann og gera eitthvað ... það eru bara 2 vikur eftir ![]()
Vildi líka koma því fram að flestir Danir eru jólaóðir (Silja þú mundir fíla þig í botn hérna núna ) ekki nóg með það að það var farið að spila jólalög á Daisy áður en ég skrifaði síðasta bloggið mitt þá voru komin jólaljós í Rønde daginn sem að A&H náðu í mig síðast, svona á ljósastaurana svona eins og er á laugarveginum um jóin.
1.desember er víst líka voðalegur dagur hérna. Það var s.s. á síðasta föstudag .. um morguninn þegar ég vaknaði við vekjarklukkuna og ákvað að fara ekki í morgunmat (eins og venjulega) þá kemur Marie til og kyssir mig á segir gleðilegann 1.desember ... WHAT !!! jájá .. ekki nóg með það .. þá var fólk að segja þetta allan daginn við hvort annað, og Marie kom með morgunmat niður í herbergi fyrir mig og það var epli og RAUTTBRAUÐ !!!
Fór í dag (gær,laugardaginn) til Aarhus að versla með Sevu .. náði að kaupa 2 jólaagjafir ... en ég neyðist til að kaupa þær núna því að ég hef varla mikinntíma þegar ég kem heim...og ætlum svo að fara aftur á föstugainn og klára þetta
Svo eru það bara 2 vikur og ég kem heim og byrja líklega að vinna 2 dögum eftir það og svo eru það bara jólin og áramótin ( og vinna þess á milli) og svo er það bara F.B. baby
En ég held að ég sé búin að koma öllu frá mér sem að mig lagaði að koma frá mér
-BaraSara
Blogg 7Sara Waage
Jæja nú loksins nenni ég ad fara að blogga. Hehe það hefur nú kanski ekkert svakalegt verið að gerast ,en samt svona sitt lítið að hvoru. Í viku 42 hérna þá var þemavika hérna hjá okkur . Þannig að við vorum í allskonar ferðum. Fórum t.d. á eplabýli að tína epli (man ekki hvað við týndum mikið af eplum, það var allavega allveg fáranleg tala ) og á eitthvað landbúnaðarsafn (held ég ) Svo fórum við líka í ferð til Suðurjótlands að skoða safn sem var fullt af myndum af skipum. Eða kanski var þetta allt sama skipið .. veitekki svo var líka salur þarna þar sem að var fullt af flöskum með skipum inní ... voða spes allt saman. Og skoðuðum svo líka Jellingssteininn... sem er víst voðalega merkilegur og er myndaf einni hliðinni á honum inní í Passanum hjá Dönum ... Svo erum við líka búin að vera í skólanum að gera eitthvað . Er nottla í dönskutímum og svo var ég í textíl þar sem að ég saumaði mér pils. Eða er svona næstum því búin með það , á eftir að falda það að neðan. Veit ekki hvað ég geri svo við það , aldrei að vita nema ég fari bara að nota pils ... Fór svo síðustu helgi heim með Kimmie til pabba hennar. Hann kom og náði í okkur hingað í skólann á föstudeginum á litla hvíta polonum sínum og svo BRUNUÐUM við til Aarhus, og ég tala um að bruna því að kallinn keyrði á 170 á POLO!!! Ég hélt að það væri bara ekki hægt .... svo var hann með tónlistina í botni og við sungum öll 3 með. Ekkert smá gaman J Svo borðum við samna og litli bróðir Kimmie líka og fórum svo útí sjoppu og fórum svo heim til Kenny æskuvinar hennar Kimmie og vorum að drekka og skemmta okkur þar allt kvöldið og fórum svo heim til pabba hennar Kimmie og sváfum þar. Daginn efti þegar við vorum vaknaðar og farnar á fætur þá kom pabbi henanr og náði í okkur 3 og fór með okkur til ömmu þeirra því að hún átti afmæli. Þar fékk ég að vera í fyrsta skipti í svona dönsku afmæli eins og þau eru venjulega. Klukkar var 1 eða 2 þegar við komum þangað og svo kom fólkið ... ekkert margir bara svona nánasta. Og svo settumst við niður og fengum svona brauð með allskonar dóti á, svona eins og snittur bara stærra JOg með því var boðið uppá kók og bjór og hvítvín, og ekkert að því svona snemma um daginn. Svo að maður varð bara að vera með í þessu öllu ;)Eftir afmælið þá keyrði pabbi hennar Kimmie mig heim til Öddu og Hejdi og ég var þar restina af helginni
Við erum með það hérna í skólanum að hver gangur á að skipuleggja 1 party fyrir alla með einhverju þema eða einhverju svoleiðis og síðustu helgi var það minn gangur sem að sá um það.Við ákváðum að halda þetta eins og brúðkaup. Fundum 2 manneskjur sem að við ákváðum að myndum giftast og svo voru send út boðskort til allra og allir voru með ákveðið hæutverk. Við vorum t.d. með 2 lesbíur , stelsjúkt fólk sem að var að stela frá fólki í veislunni, afbrýðisami fyrrverandi kærastinn, foreldrar og ömmur og afar, svo voru ég og Kimmie tvíburasystur og við vorum yngri systur stelpurnnar sem að var að gifta sig og við áttum að vera að tala illa um systur okkar við fólk þarna og áttum svo að vera að reyna við alla karlmennsgesti í brúðkaupinu, svo voru buissness stelpur þarna, snobbað fólk, svo var Kasper söngvarinn og var líka vona “poppstjarna” og skiptin um föt svona 5 sinnum í veslunni og var með stjörnustælatakktana á hreinu og margt margt fleira.
Á fimmtudeginum fyrir brúdkaupid thá klæddum vid stelpuna sem ad átti ad giftast upp í bleik fot og fórum med hana nidur i bæ og hun var med 2 skilti á sér og á odru stód hjálp ég er ad fra ad giftast og á hinu stód biddu um óskalag. Svo fórum vid um allan bæinn og hún var ad syngja fyrir allt fólkid.
Svo um kvoldid tha hittums vid allar stelpurna a einum pobbinum i bænum og svo komu 2 stelpur med hana ,og hun var med bundid fyrir augun og hélt ad vid ætludum bara ad hittast tharna og djamma saman .... eeeen nei ... eftir svona klukkutíma thá kom strippari .. hahah thad var bara of gaman ... svo eftir thad tha forum vid a annan pobb i bænum thar sem ad strakarnir hittust og gerdu thad sama fyrir strákinn :)
Eftir veisluna þá ákváðum við Kimmie að hverfa aðeins til Aarhus og kíkja í heimsókn til Kristjans og gerðum það og komum svo heim og fórum að sofa. Já þetta var síðustu helgi og núna um helgina þá fór ég heim með Kimmie á föstuaginn eftir skóla og við fengum okkur að borða og kíktum aðeins á MTV europian music awards sem að voru einmitt í Köben núna ...(djö** hvað ég hefði til í að vera þar!!) og fórum svo í heimsókn til Ngoc sem að er með okkur í skólanum og vorum þar og svo var einmitt byrjað að selja jólabjórinn frá Tuborg klukkan 1 mínútu í 9 þetta kvöld og við notfærðum okkur það og fengum okkur jólabjór. (þetta er líka alveg svakalegt mál hénra í DK með jólabjórinn .. stórar auglýsingar og fólk að bíða í röðum ) kíktum svo aðeins á djammið. Daginn efttir þá tók ég rútu heim í skólann því að Kimmie var að fara á stand up show í Vejle um kvöldið.
Þegar ég kom í skólann þá var barasta allt dautt og allrir vildu bara horfa á vídjó um kvöldið (eða þeir fáu sem að voru hérna um helgina) svo að ég, Kaiu, Marrid og Seva ákvaðum að heilsa upp á fólkið á Daisy ( sem er einmitt skemmtistaðurINN í bærnum )þar er einmitt farið að spila jólalög !! og svo voru þau með Snow machine í loftinu og gerfi snjór útum allt.
Og vorum þar til lokunar og fórum heim að sofa. Svo er ég bara búin að vera allgjör klessa í dag og liggja í rúmminu og hlusta á tónlist og horfa á Futurama.Framundan er svo þemavika í næstu viku þar sem að ég er að fara að búa til PAPPÍR alla vikuna og auðvitað dönskutímar. Þar sem að þessi vika er aðalega hugsuð fyrir fólkið sem að er á ferðabrautinni og blaðamannabrautinni og pædagog og svoleiðis , fyrir hina er eimitt pappír ... og þar sem að ég er útlendingur þá fæ ég líka dönsku svo er ég að fara á einn fyrirlestum um AIDS og á fimmtudaginn þá erum við að fara til Odense og svo á föstudaginn þá get ég farið í STOMP hehe já ætla að gera það til að aðeins svona breyta til.
Næstu helgi er líka næsta party sem að gangarnir eiga að skipuleggja og það hvíslaði lítill fugl því að mér að þar væri útileiguþema í partyinu hahaha en ég hugsa að ég verði ekki hérna ... hafði hugsað mér að fara til Öddu og Hejdi ef að þær eru heima því að á sunnudaginn er svo fjölskyldudagur og þá koma þær með mér hingað.
Svo helgina eftir það er lööng helgi (frí á föstugeginum líka ) þá verð ég hjá Öddu og Hejdi og það er einmitt afmælishelgin mín líka ... og ykkur er boðið í kaffi til Öddu og Hejdi heyrði ég ef að þið hafið áhuga ![]()
Ég ætla nú ekkrt að vera að hafa þetta neitt mikið lengra ... uuu jú !! ég er búin að setja inn 170 myndir frá rúmeníu endinlega kíkja á það og myndir frá Október fara að detta inn bráðum J -BaraSara
blogg 6Sara Waage
Jæja eg ætladi bara adeins ad segja fra sidasta thridjudagskvoldi.
Vorum bara ad gera mest litid um kvoldid og forum svo inna herbergi eg og Marie og vorum bara ad spjalla ogvorum ad spjalla til svona half 1 og tha forum vid bara ad sofa. Marie sofnadi bara strax og hun sneri ser a hina hlidina og eg la andvaka i svona halftima eftir thad ….
Svo um half 2 -2 leitid voknm vid thad ad thad var verid ad berja a hurdina hja okkur , vid erum nu alveg vanar ad vakna vid thad og heldum bara ad thetta væri Khalid og Martin og drogum bara sængina upp yfir hausinn og heldum afram ad sofa …
En svo hætti theesi havadi bara ekki og heyrdum ad thadvar verid ad berja a adrar hurdir lika og folk med potta og ponnur med MASSIV læti… svo ad vid drullum okkur framur rumminu og opnum hurdina . Tha stendur stelpa ur skolanum fyrir utan og er svarklædd og svort malud um augun og segir okkur ad fara upp i fyrirlestrarsalinn. Vid gerdum thad en a midri leid var okkur sagt ad klæda okkur vel thvi ad vid værum adfara ut.
Komum upp i salinn og tha eru kerti utum allt og a svidinu liggja tveir strakar eins og their seu daudir. Svo stendur einn strakurin i pontunni og tilkynnir okkur thad ad mord hafa verid framid og ad thad væri buid ad skipta okkur upp i lid og vid attum ad fara a mismunandi stodvar og leysa verkefni og finna ut hver mordinginn væri …
Byrjudum ad fara a eina stod thar sem ad vid attum ad byrja a ad bua til cheer – song … sjitt man eki hvad thad heitir. Og svo attum vid ad leysa einhverja thraut og fengum tha eina visbending og forum svo ad næstu stod.
A einni atti einn ur lidinu ad klifra upp i klifur tuninn og na i visbendingu thar
Svo attum vid ad yta bilnums hans Jakobs 3 hringi i gegnum einhverja keilur
Attum svo ad klæda okkur ur ollum fotum sem vid mattum missa og reyna ad bua til kedju ur fotonum fra einum ljosastauri til annars og aftur til baka thvi ad vid fengum lika stig a hverrri stod fyrir sig.
Svo attum vid ad draga mida uppur poka og leika thad sem ad stod a midonum. Og a ollum midoum var setning um einhvern i skolanum og hvad hann gerdi ( t.d. thad sem eg dro var : Morten is drunk and speaks english (sem eg lek mjog vel )) mattum ekki tala eda neitt bara leika.
Svo attum vid ad stinga hendinni ofani 10 mismunandi dollur og geta hvad ver ofani theim og ofani theim var t.d. hratt kjot, matarafgangar sidan daginn adur , og bjor .
Sidasta stodin sem minn hopur for a var i hollinni og thar attum vid ad spila batninton i mirkrinu ( eda thad var kveikt a 6 kertum thar inni … heheh bara of gaman .
Svo hittums vid oll i stofunni og fengum kako og bollur.
Svo voru ursitin tilkynnt og mordinginn afhjupadur J
Thorny var mordinginn og mitt lid var i 2 sæti J
Hehe bara of gaman vorum so komin i rummid kl. 5 og fengum ad sleppa fyrsta timanum og morgunmaturinn varsvo klukkan korter i 10 J
Helgin er buin ad vera mjoog fin …
Forum a fostudaginn eg og Marie og Thor og Nikolas heim til Marie og fengum heimatilbuid Lasanja uummmm … og svo komu vinir hennar i heimsokn og vid forum svo ad djamma thar i midbænum i Hadesliv J for svo a laugardagin i lest heim til oddu og hejdi og er buin ad vera thar alla helgina J sem er alltaf gott J svo var fri lika i dag i skolanum svo ad eg kom ekki i skolann fyrr en i kvold J
Svo er bara ” skoli” framundan og themavika eftir 1 eda 2 vikur J
Drifid ykkur svo i ad skrifa mer bref J
Blogg 5Sara Waage
Laugardagur 23.sept: Vöknuðum og fengum okkur morgunat í skólanum og smurðum okkur nesti til að éta um hádegið og fórum út í rútu og keyrðum af stað til Billund. Átum Nestið okkar og kítum aðeins í fríhöfnina og fórum í flugvélina. Þegar við komum út þá sáum við þessa PÍNULITLU flugvél sem að við áttum að fljúga með .... hún rétt rúmaði okkur ... ég var ekkert rosalega sátt þar sem að ég verð bara flughræddari og flughræddari með hverju skiptinu sem að ég flýg, og er búin að vera að fljúga þónokkuð í sumar. Komum okkur fyrir í flugvélina og flugum af stað til Kastrup og tókum þar upp nokkra krakka úr skólanum ásamt fjögurra manna sænskri fjölskyldu sem var að fara með okkur og flugum af stað til Rúmeníu. (ennþá í Litlu vélinni ) Komum svo til Rúmeníu 3 tímum seinna og fórum þá í rútu og keyrðum af stað til Bagaciu. Leiðin frá “flugvelinum” til Bagaciu er 30 km en þar sem að vegirnir eru ekki það góðir þá tekur það einn og hálfann tíma að keyra það. En þegar við vorum búin að keyra í svona korter þá bilaði rútan og þá kom önnur helmingi minni rúta til að sækja helminginn af hópnum og hinn hópurinn átti að bíða eftir því að rútan keyrði okkur til Bagaciu og keyrði til baka og næði í þau og keyrði með þau til okkar (þeir sem eru klárir í reikningi geta áttað sig á því hversu langur tími það er að bíða í rútu á “hraðbrautinni” ) en rútan þeirra komst í lag svo að þau komu 40 mínútum á eftir okkur . Svo fengum við að borða og röðuðum okkur niður í herbergi og fórum í herbergin og komum okkur fyrir og svona. ( Hótelið var á 3 stöðum í bænum. Efst var hótelið þar sem að nokkur herbergi voru og veitingastaðurinn og barinn , sundlaugin, heitur pottur, trampólín og fótboltavöllur. Aðeins neðar í götunni var mitt hótel þar sem að við vorum líka með bar og svo var annað útibú í götunni við hliðinaá. ) Átum svo kvöldmat og afhendum svo “Dummehatten” ( sá sem að gerði eitthvað heimskulegt fékk hattinn og var að vera með hann allt kvödið og daginn eftir) og það var Lina sem fékk hattinn því að hún gleymdi passanum í skólanum þegar við vorum að fara til Rúmeníu og þurfti að fá bráðabirgðapassa og borga hellings fyrir það. Skemmtum okkur svo um kvöldið og fórum svo að sofa.
Sunnudagur 24.sept: Vöknuðum og átum morgunmat og fórum í Messu í annarri kirkjunni í bænum. Messan útaf fyrir sig væri nóg í heila bók. Ekkert smá spes að fara í þessa messu. Svo skiptum við okkur í 5 og 6 manna hópa og fórum í nokkur hús í bænum að borða hádegismat með Rúmenskum fjölskyldum. Ég, Marie, Þórný, Helena, Jakob og Oliver fórum saman í eitt húsið og borðuðum þar með mömmunni á heimilinu og stelpunni sem að vera 14 ára. Fengum rúmenskan mat og Rauðvín með. Fengum bara mjög góðan mat. Þegar forrrétturinn var búinn þá kemur mamman með 2 lítra bjórflösku og spyr hvort við drykkjum ekki bjór, við sögðum bara jújú þótt að klukkan væri ekki nema 12 um daginn. Svo borðuðum við og drukkum ,en um leið og glasið var hálfnað þá kemur hún með flöskuna og fyllir glasið aftur , við reyndum að afþakka en það virkaði bara alls ekki. Héldum svo áfram að borða og spjalla (sem að var mjög sérstakt því að konan talaði ENGA ensku og stelpan talaði , jú allveg ágæta ensku) og mamman hélt bara áfram að fylla í glösin. Svo þegar flaskan kláraðist þá vorum við solltið fegin því að við áttum að keppa við heimafólkið í fótbolta kl.2 en , neeeei ... kemur ekki kella með aðra 2 lítra flösku. Hélt að við yrðum ekki eldri. En svo fórum við niður að hóteli og spiluðum fótbolta við fólkið ( ég spilaði reyndar ekki því að ég var enþá með sýkingu í fótinum ) og það var nú annsi skrautlegur leikur , því að við vorum ekki eina fólkið sem lennti í þessu. Eftir fótboltann áttum við að fara á munaðarleysingjaheimilið í bænum en komumst víst ekki að því. Því að Marion var með fjórhjól þarna sem að strákarnir sátu aftaná og voru að keyra upp og niður götuna og Thor og Martinn sátu aftaná og Martinn flaugaf hjólinu og lenti á götunni. Hann fékk heilahristing og var fluttur á spítala og var líka saumuð 3 spor í hausinn á honum. Eftir það gerðum við voða lítið það sem eftir var af deginum og tókum kvöldinu “rólega” ;)
Mánudagur 25. sept: Fórum með rútu til Sovata og fórum þar í Saltnámu þar sem að fólk kemur og er með börnin sín sem eru með Astma og er þar í svona 1 viku ( þar er búið að innrétta þennan hluta námunnar fyrir þetta og það eru leiktæki og bekkir og sjoppur og veitingastaðir þarna niðri og meira að segja Kapella. ) skoðum þar og fórum svo aftur í rúturnar og fórum á Hótel í bænum þar sem að við fórum í Leirinnpakkningu.... ( fer inní herbergi og liggur á bekk og svo kemur kona og smyr á þig heitri drullu og pakkar þér inní lök og teppi ) haha og svo var sundlaug þarna og sána, gufubað og svona saltvatnslaug einvhver ( sem er dælt uppúr vatninu í bænum og hitað upp ) Eftir það fórum við heim og borðuðum mat úti á veitingastaðnum og fengum nokkra krakka úr menntaskólanum í heimsókn og þau borðuðu með okkur og voru með okkur m kvöldið í allskonar leikjum ( að sjálfögðu ... þetta eru nú einu sinni danir )
Þriðjudagur 26.sept: Þá fórum við til Sighisoara þar sem að við borðuðum í húsi þar sem að Drakúla átti heima í og þar er núna veitingastaður “Casa Vlad Dracul” . Skoðum svo einhverja kirkju sem var uppá hæð þarna rétt hjá. Síðan þá fórum við í skoðunartúr um bæinn. Eftir það þá fórum við í heimsókn í verksmiðju þar sem að var verið að gera föt og fengum svo að vita að í þessari sömu verksmiðju eru framleidd Armani föt og fleira ... Á leiðinni þaðan þá sá ég solltið sem að ég mun aldrei gleyma. Við vorum rétt komin frá verksmiðjunni þegar við keyrum að FULLT að fólki sem var úti á götu að staaara á eitthvað og þegar við litum í áttina að því sem að fólkið var að horfa á þar sé ég stórann vörubíl stopp úti á götu, og undir honum þar lá mannsekja með aðra höndina eins og hún væri að teygja sig undan bílnum og hausinn í milljón og 5 bútum útum allt þarna. Þá hafði vörbíllinn keyrt YFIR HAUSINN. Ekki allveg það sem að manni langar að sjá. Svo var matur á hótelinu og svo skemtun eftir það
Miðvikudagur 27.sept: Brjuðum á því að fara til Tarnaveni þar sem að við fórum á svona markað. Þar sem að fólk kemur og er að selja allan andskotann. Föt, skó, dót, eldavélar, bassakeilur, nammi og bara nefndu það. Og fórum svo annarstaðar á annan markað þar sem að a verið að selja ávexti og grænmeti. Svo var okkur boðið í heimsókn í menntaskólann þar í bænum og fórum í skólastofurnar og töluðum við krakkana í skólanum og þar á meðal voru krakkar sem að höfðu komið í heimsókn til okkar á hótelið. Borðuðm svo hádegismat á vegaveitingastað rétt fyrir utan bæinn. Eftir þar máttum við velja hvort að við vildum fara að heimsækja geðsjúkrahús eða fara í brugg”verksmiðju” . Ég fór á geðsjúkrahúsið ásamt laaang flestum. Byrjuðum á því að safna saman peningum og fara og versla mat fyrir fólkið á sjúkrahúsinu og fórum svo á spítalann. Fórum inn í 10 manna hópum og gengum einn hring í herbergin sem að fólkið var í. ( á ísl. Skala þá væru svona 6-8 átta manns í hverju herbergi þarna, en þar sem að þetta er líka notað fyrir “elliheimili” þá er 30 – 40 manns í hverju herbergi !!!! ) Lágu bara rúmm við rúmm útum allt þarna og svo er fólkið bara dópað upp allan daginn því að það er ekki nógur mannskapur til þess að hugsa um allt fólkið þarna. Summt fólk er ekki einu sinni veikt þegar það fer þangað , en það verður það með tímanum. Svo mígur fólkið og skítur á gólfið og starfsfólkið þrífur það með því að hella klóri á gólfið og skola því út !! Fórum svo í heimsókn á “munaðarleisingjaheimilið” í Bagaciu þar sem að ein fjölskylda var búin að taka að sér 14 börn sem voru öll úr Bagaciu! Því að það eru svo mikið að sígaunum í bænum sem geta ekkert séð um börnin sín. Þau bjuggu bara mjög vel þarna og fengu einkakennslu og allt þarna. Notuðum svo tímann og báðum þau um að spila fyrir okkur, og sátum og hlustupum á þau og fórum svo út með þeim og kenndum þeim allskonar leiki og gáfum þeim Twister spil sem að við höfðum sjálf búið til í skólanum og þýddum reglurnar yfir á Rúmensku. Fórum svo heim og borðuðum mat úti á hótelinu og heimafókið var að skemmta okkur með því að dansa rúmenska dansa og dró svo okkur að dansa bara gaman
Fimmtudagur 28.sept: Fórum strax eftir morgunmat að heimsækja klaustur og kirkju þar. Fórum Targu Mures og borðuðm þar á veitingastað og máttum svo ráða hvort að við færum í heimsókn í glerverksmiðju, eitthvað safn, útvarpsstöðina eða bara labba sjálf um bæinn og versla ( eða reyna það allavega ) Við stelpurnar ákváðum það að við skyldum bara fara að versla því að við vorum búin að vera í endalausu prógrammi alla daga. Svo að við fórum og skoðuðum í búiðrnar þarna og það var nú svosum ekkert að fá þar, en samt gaman að rölta bara um og spjalla og skoða. Fundum svo eina búð þar sem að maður gat keypt allskonar dót í hárið og skartgripi. Síðan fórum við út að borða saman stelpurnar því að Þórný átti afmæli. Eftir það þá fórum við á Sinfóníutónleika. Það var órtúlega gaman , þar sem að ég hef aldrei áður farið á sinfóníutónleika. Síðan var haldið heim og skemmt sér meira.
Föstudagur 29.sept: Morgunmatur úti á hótelinu og fórum svo í heimsókn í barnaskólann í Bagaciu þar sem að voru OF sætir krakkar!! Vorum að labba um skólalóðina þegar ein lítil stelpa grípur í hendina á mér og brosir til mín og leiddi mig útum allt og var að sýna mér allan skólann og var svo krúttleg og var alltaf að borsa til mín og strjúka yfir hringinn sem að ég var með og úrið mitt .... bara of krúttleg. Og svo fórum við að kenna þeim allskonar leiki og lög og hún sleppti ekki á mér hendinni allan tímann. Eftir heimsóknina þangað þá áttum við að fara í göngutúr uppá og í kringum fjallið sem að var rétt hjá Bagaciu ( 6 tíma göngu, þakka ykkur fyrir ) en þar sem að ég var Handicapped þá fékk ég að sitja í hestavegni þá ferð, ásamt Mette sem datt í Norgesferðinni Það var voða næs Komum aftur og borðuðum kvöldmat úti á veitingastaðnum á hótelinu og fengum að smakka Rúmennst heimbrugg sem að heitir Twigga(held ad það sé skrifað svona) og skemmtum okkur svo um kvöldið .
Laugardagur 30.sept: Vöknuðum og byrjuðum að pakka og vorum svo bara að slappa af þangað til að hádegismaturinn var og settum dótið inní rútuna. Eftir það var bara heví tjill þangað til að við færum út á flugvöll þannig að ég og Kimmie og Katrina og Nana fórum í heimsókn í Sígaunahverfið í Bagaciu. Fórum svo af stað út á flugvöll og flugum af stað. Lofthræðslan var ekkert að batna en sem betur fer sat ég við hliðina á Þórný og systir hennar er líka flughrædd þannig að hún talaði við mig allan tíma meðan við vorum að taka af stað og lenda .... 2 hehe ... en þegar við áttum að lenda í Köben þá gátum við ekki lennt strax ÞVÍ AÐ VIÐ VOUM AÐ FLJÚGA YFIR ELDINGARSKÝ!!!!!! Þannig að ég er búin að sjá eldingar að ofan frá núna ... það er ótrúlega flott ... en ekki þegar þú ert að hugsa um það að við séum að fara að fljúga í gengum þetta hehe ... Flugum svo aftur til Billund og tókum rútu heim til Ronde. Þegar við komum þangað voru nokkrir hugrakkir sem skelltu sér á djammið á Daisy en ég lét það nú allveg vera ... fór bara að sofa fljótlega eftir að við komum heim
Annars er voða lítð að frétta nema það að ég er orðin feit .... hef EKKERT getað hreyft mig í mánuð útaf sýkingunni sem ég fékk í fótinn og er bara búin að vera að éta og í óhollustunni .... er að reyna að byrja að hreyfa mig núna því ég er farin að geta hlupið aðein og ákvað að notfæra mér það ... Það þýðir ekkert annað því að annars verður að flytja mig heim í gámi eins og Keikó á sínum tíma.
Annars er ég að fara heim með Marie á morgunn og ætla að vera þar í einn dag og fara svo til Öddu og Hejdi á Laugardaginn og vera þar fram á mánudag því að það er löng helgi ;) -BaraSara
Blogg 4 ??Sara Waage
Varúð !! Varúð!!Framundan er langt blogg ... þeir sem að hafa ofnæmi fyrir löngum bloggum vinsamlega haldið ykkur frá þessari síðu og ekki kvarta í dálkinum hér fyrir neðan !!Jæja ég er ekki búin að vera neitt voða lega dugleg í því að blogga uppá síðkastið eeeen ... ég skal reyna mitt besta. Þann 6. september lagði af stað 23 manna hópur hugrakkra krakka frá Ronde Hojskole í nokkura daga ferð uppí hálendin í Noregi. Daginn áður höfum ég og Marie tekið okkur til og pakkað niður í sameiningu fötunum og því öllu swem við þurftum að taka með til Noregs. Eftir kvöldmat fórum við ásamt nokkrum öðrum stelpum í eina skólastofuna til að gera svona æfingar fyrir læri-rass og magaaf spólu. Það var nú kanski ekki besta hugmynd í heimi því strax eftir það þá voru við komnar með strengi í lærin. Eftir það þá fórum við upp í salinn þar sem við hittum hina krakkana sem voru líka að fara til Noregs og skiptum á milli okkar matnum og tjöldumnu og pottunum og öllu því og tróðum því í troðfullu bakpokana okkar. Fórum svo út fyrir þar sem rútan beið okkar. Settum allt draslið okkar inn í rútuna og komum okkur fyrir í rútunni. Það voru líka nokkrir krakkar úr Eftirskólanum að fara líka til Noregs svo að rútan var FULL.
Ennnn þegar við ætluðum að fara af stað þá bilaði rútan (lak vatnskassinn eða eitthvað svoleiðis) þannig að vioð þurftum að pannta nýja rútu og setja draslið í hana. Svo brunuðum við af stað því að við þurftum að ná ferjunni. Við rétt náðum að koma þangað, tókum dótið út úr rútunni og settum það allt í einn gám og hlupum um borð í ferjuna. Fórum svo og fundum okkur stað einhverstaðar á gólfinu og lögðumst þar niður og fórum að sofa. Þegar við vöknuðum morguninn eftir í ferjunni þá var okkur tilkynnt það að farangurinn hafði gleymst í DK !!! já það var frábært. Allur maturinn !!! þannig að ferjann bauð okkur uppa morgunmat á hlaðborðinu þeirra. Svo var okkur komið fyrir í rútu og farið með okkur að nyrsta punktnum á Noregi og skoðuðum gamalt varnarbyrgi síðan úr seinni heimsstyjöldinnni og eitthvað svoleiðis til að drepa tímann þangað til að farangurinn kæmi. Fórum svo og henntum farangrinum í rútuna og keyrðum svo af stað uppí fjöll og byrjuðum að labba.
Fyrsta brekkan sem við fórum upp var mjöög Brött ( og þeir sem að þekkja mig vel vita að ég er LOFTHRÆDD) löbbuðum svo og löbbuðum þangað til að við komum að staðnum þar sem við ætluðum að sofa fyrstu nóttina, tjölduðum og elduðum kvöldmat. Um kvöldið kveiktum við varðeld og sátum þar og sungum og átum nammi og vorum að segja sögur af okkur sjálfum. Nóttin var mjööög köld, ég hélt að ég myndi hreinlega deyja úr kulda. EEEn ég lifið af. En um morguninn þegar ég vaknaði þá voru hendurnar mínar allar í útbrotum, inní í lófunum líka.!! Svo bólgnuðu þær allar upp og þar var vont að hreyfa puttana !! jii en gaman ! svo pökkuðum við niður og héldum af stað aftur. Það voru ekki allir jafn heppnir því að Zara Sofia vaknaði þann morgunn með hita og með nuddsár á mjöðmunum eftir bakpokann og fleiri en einn og fleiri en 2 lenntu óvart með fótana ofaní vatni og voru blautir í fæturnar.
Seinna um daginn fengum við að vita það að staðurinn sem við ætluðum að gista á hefði verið lokað þannig að við þurftum að finna nýjann stað til að gista á. Fundumm hann og komum upp tjöldum og elduðum kvöldmat. Kveiktum svo eld og hituðum kakó og grilluðum sykurpúða og sungum og höfðum gaman. Daginn eftir tókum við aftur saman og byrjuðum að labba af stað aftur og þar sem að við gistum ekki á staðnum sem að við ætluðum að gista á þá vorum við lengra frá staðnum sem að við ætluðum að fara aftur í rútuna. Svo að við misstum af henni. En við áttum enþá eftir að fara niður þessa svakalegur BREKKU !! Sjitt ... ég komst nú samt niður og Mette hélt í hendina á mér mest alla leiðina eða Esbjorn. Þegar við áttum svona 100 metra eftir að rútunni þá rennur Mette í mölinni í brekkunni og snýr ökklann. Ekki gott . Kasper var nú samt með allar græjur með sér og batt um fótinn á henni. Fórum svo aftur í rútunna og henntum Mette og Zöru Sofiu út þar sem við náðum í klettaklifursdótið okkar og fórum á annan stað þar sem að við komum tjöldunum aftur upp og fórum að setja klettaklifursdótið á sinn stað.
Eftir það þá fóru einhverjir að klifra en ég lét það vera því að klettaklifur og lofthræðsla fara ekki beint vel saman. Svo að ég og einhverjar stelpur fórum að þvo á okkur hárið og baða okkur í vatniu þarna. Það var voða næs fyrir utan það að vatnið var nánast við frostmark og ég hélt að við yrðu ekki eldri J fórum svo að elda því að þeir sem ekki fóru að klifra áttu að elda fyrir alla. Elduðum og svo fórum við að FELLA TRÉ hahaha það gekk vel og ég á það allt á vídjói. Mia var ekki svo heppin þar því að hún fékk eina greinina í hendina og brákaði putta við það. Þá kom Kasper aftur til bjargar og batt um puttann á henni. Kláruðum svo að fella tréð og söfnuðum greinum og svo kveiktum við stelpurnar eld og sátum svo við eldin allt kvöldið og vorum í leikjum og syngja allt sem fylgir því að vera Dani og kveikja varðeld ;)
Daginn eftir þá ákvað ég að vera ótrúlega dugleg og fara að klifra. Fór þangað sem að við höfðum sett upp klifurbúnaðinn. Og jújú ég fór uppá toppJ sjitt hvað ég var dugleg og ekki nóg með það heldur fór ég upp á öðrum stað líka J Höfðum sett upp reipi á 4 stöðum á sama klettinum og ég fór upp á 2 stöðum J var nú samt líka allveg heví hrædd þegar ég var komin upp á toppinn. Svo daginn áður þá höfðu komið 2 strákar sem voru að klifra líka og þeir settu reipi í stærri klettinn sem að var þarna rétt hjá þannig að strákarnir urðu að fara þar upp líka , ég lét það nú allveg vera en það voru nú allveg nokkrar stelpur sem að fóru þar upp þar á meðal Marie herbergisfélaginn minn. Borðuðum svo hádegismat og gengum frá tjöldunum og fórum að staðnum þar sem að rútan kom og náði í okkur og við fórum að ferjunni aftur. Þar fengum við pening til að kaupa okkur að borða í ferjunni. Við fundum bara fyrsta veitingastaðinn og fórum þangað og komumst svo að því að nokkrir af strákunum höfðu farið á voða fínann veitingastað í ferjunni og fengið steik og sósu og Rauðvín og læti. Hefði nú allveg verið til í það.
Eftir það þá voru einhverjar stelpur sem fóru í fríhöfnina og verslað þar eins og brjálæðingar. Um kvöldið fórum við svo á Pöbbinn í ferjunni og sátum þar öll og þar var hljómsveit og læti þar og sátum við allt kvöldið og drukkum og dönsuðum og skemmtum okkur mjög vel. Komum til Dk aftur um 2 leitið um nóttina og fórum þá í rútu aftur upp í skólann og gengum frá tjöldunum okkar og klettaklifurbúnaðinum og vorum þá tilbúnar að fara niður í herbergi og SOFA því að við áttum að mæta í skólann daginn eftir samkvæmt stundarskrá. En neeei , Marie hafði týnt lyklinum af herberginu okkar í Noregi og við ákváðum að hún myndi bara taka lykil og ég geymdi minn í herberginu. Þannig að við þurftum að finna Gunnar og biðja hann að opna fyrir okkur ( Gunnar er kennarinn sem fór með okkur til Norges) Svo loksins komumst við inn í herbergið okkar og rúmmið mitt hefur aldrei litið betur út J
Dagana eftir það þá var ég öll í útbrotum á höndonum og fótonum og fór til læknis á þriðjudeginum og fékk stífkrampaSPAUTU og einhverjar pillu og krem til að setja á þetta. Voða huggulegt!! Og stuttu eftir það þá var ég uppétin af moskítóflugum , aðallega á löppunum og öklarnir á mér bólgnuðu allir upp og ég átti erfitt með að ganga mest alla vikuna. Fór svo til Öddu og Hejdi á föstudeginum og slakaði þar á og bólgan á löppunum var næstum allveg farin á mánudeginum. En held að ég hafi verið bitin í gær aftur á öklann því að hann er farinn að bólgna allsvakalega upp hinum megin við þar sem að ég var bitin fyrr í vikunni. Sem er auðvitað bara of gaman því að við erum að fara til Rúmeníu á Laugardaginn. Verður gaman að sjá mig haltrandi í Rúmeníu.
Annars held ég að ég sé búin að segja frá því sem að ég ætlaði að koma frá mér í þessu bloggi J Svo er party á fimmtudaginn því að við verðum ekki hérna um helgina J
Uuuu jú eitt annnað . Á föstudaginn síðasta þá átti Marianna (einn kennarinn hér) 30 ára kennara afmæli hér. Svo að það varð að halda upp á það. Þannig að við fórum allir nemendurnir inn í sal þar sem að við hittumst alltaf á morgnanna og æfðum lag þar sem að var búið að breyta textanum umm hana og fórum svo í svona hvíta kirtla og héldum á kertum og löbbuðum svo öll í röð inn í matsalinn og sungum þetta lag og borðuðum svo. En þegar við vorum inní í salnum enþá og vorum að raða okkur upp í stærðarröð á kemur einn strákann til mín og spyr mig : Sara how high are you ?? og var auðvitað að meina hversu há ég væri. sjitt ég hélt að ég myndi bara kafna úr hlátri. Ég bara hló og hló og gat ekki svarað honum. Sjitt stupit question!! Svona tala danir ensku hahah . merkilegt nokk ...
En þetta er örugglega lengsta blogg sem ég hef nokkurntíman skrifað og ég er mjööög stolt af mér . og enþá stoltari af þeim dugnaðarforkum sem að lesa þetta. Þeir sem að lesa allt bloggið vinsamlega kvittið hér fyrir neðan : nafn og heimilisfang og ég skal senda ykkur medalíu. J Annars er ekkert víst að ég bloggi fyrr en ég kem heim frá Rúmeníu. Svo að þið getið haldið niður í ykkur andanum þangað til þá ;)
Ps. Ætla að reyna að klára að setja myndirnar mínar inná síðuna sem fyrst.
-BaraSara
meiri myndirSara Waage
Jæja nenni ekki allveg ad blogga nuna ... threytt ... skrifa um noge bradum ... en eg er buin ad setja inn myndir fra Norge inna mynda siduna thannig ad thad er hægt ad skoda thær ... er samt ekki buin ad setja thær allar en thad kemur thegar eg nenni ad fara i mina tolvu ...
thad væri lika gaman ad fa koment herna a siduna fra folki sem er ad lesa thetta ... ! annars væri bara betra ad send thetta beint til sillu og helgu vera ekki ad thessu veseni ad setja thetta a netid og svoleidis ...
annars er ekkert vist ad eg komi heim aftur ....
fokking moskitoflugurnar eru gjorsamlega ad eta mig upp til agna hera, og eg er med svo vidkvæma hud ad eg bolgna allveg massivt upp, get ekki verid i skom thvi ad eg er svo bolgin a ristinni.! vidbjodur !!
-BaraSara
myndirSara Waage
held að mér hefi tekist að setja myndirnar frá frakklandi inná síður ... það er búið að taka mig u.þ.b. 3 og hálfann tíma eða svo ... jii hvað mér hlakkar til að fá nýja tölvu. En þessi er nú samt mér svo kær . Hún er með sál þessi elska :)http://myndir.ekkert.is/barasara/?g2_navId=xa193fd95 ætla svo að bloggar kanski í kvöld ... meika ekki meir hérna fyrir framan tölvuna.
blogg 3Sara Waage
Jæja .... fyrst i dag get eg kvartad yfir mat ...veit ekki hvort thad er utaf thvi ad hann var vondur eda eg bara eitthvad skrytin i dag ... Eg vil halda thvi fream ad hann hafi ekki verid neitt spes allavega ...
Ætla bara ad segja adeins fra helginni og deginum i dag.
A fostudagskvoldid komu Adda og Hejdi ad sækja mig i skolann ... forum heim til theirra og ætludum ad fara ad horfa a Brokeback mountain og eta isl nammi og hafa thad huggo :) En eg sofnadi yfir myndinni (synd .. mig langadi virkilega ad sja hana ) sa part og part ur henni ;) held ad eg se ordin thekkt fyrir ad sofna yfir myndum ... hahaha una thekki thad kanski best :) en forum svo fljotlega ad sofa svo bara eftir myndina ... eg vaknadi svo um hadegi og vorum svo rosa duglegar og Hedi sagadi nidur eitt tre i gardinum og erdi adeins fint thar ... eg og Adda vorum duglegar med straumspadann ad drepa vespur og forum svo og nadum i kerru og keyrdum greinarnar og thad alt i Sorpu. Svo for ad riggna svo vid akvadum ad fara inn og horfa a mynd med einhverjum gaur ur N-sink (kann ekki ad skrifa thad) sem hitti stelpu i lest og var ad leita ad henni thad sem eftir var af myndinni ... hum var FANTASTISC!! skil ekki af hverju eg sofnadi yfir B.M en eki thessari ... uff ... en svo bordudum vid godan mat og spiludum rummikub og ettum isl nammi :)
A sunudeginum var eg buin ad sofa kl.8 og barasta VAKNADI!! for bara ad lesa bokina mina og svona ... vorum svo bara ad hanga heimafyrri part dagsins og forum svo til Århus i bilka og versludum i matinn og svoleidis .... keypti mer innanhus sko i tilefni af thvi . Forum svo heim og bordudum og svollis og svo keydu thær mig up i skola ( ahh home sweet home ) a eftir ad setja inn myndir af herberginu minu tha vitidid hvad eg a vid ... :s
Gerdi voda litid eftir thad nema tala vid Marie og akvadumsvo ad vakna EXTRA snemma og fara ut ad skokka :S ( ohh sara thu ert svo vitlaus ad vera a d lofa ther i eitthvad svona) Vaknadi kl.3 i nott og hugsadi med mer : ekki sjens i helviti ad eg vakni i fyrramalid og fari ut ad skokka ... og stillti vekjaraklukkuna aftur a venjulegan tima ... Eeennn ... eg for nu samt ut ad skokka KLUKKAN HALF 7 I MORGUN!! geri adrir betur :) forum svo i morgunmat og tha byrjadi thad...
Venjulega er eg von ad fa mer bara thykmjolk i morgunmat eda hafragraut ,en thad var eingin tykkmjolk i dag ... bara eitthvad ogedslegt jogurt med avaxtabitum uti ... oj .. svo ad eg ætladi ad fa mer hafragraut ... eeeen neeei ... thad var enginn hafragrautur ... Bara grautur sem var ur rugbraudi sem var latid liggja i vartni eda einhverju svoleidis og var bara grautur ... og thetta bordar folk :S heitt .... svo eg let mig hafa thad ad eta thetta jogurt og setta bara musli a thad til ad fela avaxtabitana. ætladi bar aad borda vel i hadeginu . SVo var hadegismatur tha var einhver spinat kassa med kjotbitum uti !!! svo ad eg bordadi hrisgrjon og salat !! svo var kvoldmaturinn eins og venjulega thegar thad er heitur matur i hadeginu tha er bara braud og alegg i kvoldmat ... ( danir eta allan anskotan ona braud) ekki ad fila thad ... svo ad eg er svong ...
for i keramiktima i dag ... byrjudum a thvi ad bua til einhverjar skalar eda platta eda eitthvad svoleidis svo sagdi hann teim ad bua til mannesku ur leirnum(eg erEKKI THAD LISTRÆN ad eg geti gert manneskju ur leir ... ) svo ad eg stod bara og vissi ekki allega hvad eg ætti ad gera ... tha kemur Bjørn til min og segir : OHH I know .... you will make a big Icelandic sheep!!! ( allveg otrulega spenntur lika) big one or litle one ... ( hann er sko Norskur svo ad hann talar allveg otrulega fyndna donsku og ensku ) do you have any sheeps?? eg: Do i have sheeps my self ? in my garden ?
Bjørn: yes!!
Eg: NO!!
Svo hann vildi ad eg gerdi islenskar kindur ur leir ... eg gerdi thær og svo kom hann til min thegar eg var buin ad gera eina og var voda spenntur ... : I can tell thad you have senn a sheep before :)
yes i have senn a sheep before.... :S
svo ad eg gerdi kindur ur leir i dag :) thvilikur dugnadur ... og geri adrir betur
er svo bar abuin ad vera ad læra med Khalid fra Egyptalandi fyrir donskutimann i fyrramalid og drekka te... ætlum svo ad kikja nidur i setustofu a eftir og syngja meira a donsku ... :D
ætla ekki ad vera ad hafa thetta eitthvad mikid lengra :)
-BaraSara
Blogg 2Sara Waage
Jæja tha er eg buin ad vera herna i u.t.b. viku nuna .
Eg er i herbergi med annarri stelpu sem heitir Marie og er 19 ara gomul og er fra DK. I gær byrjudum vid ad fara i tima, erum annars bara buin ad vera i kyningu i ollum timunum og skoda skolann og svædid her.
Thetta er bara voda finn stadur , buum i skolanum allar stofurnar eru i hudinu sem vid buum i nema itrottirnar og audvitad utivistin.
Fengum nyja stundartoflu i gær tvi ad hin passadi ekki og missti thar 2 utivistartima
en eg er entha med einn svoleidis .... annars er eg i nokkurm textil timum og keramik lika og svo tek eg ad sjalfsogdu donsku og er svo i tveimur mismunandi itrottatilmum :) allt voda næs bara.
forum um daginn i sma gongu herna og forum ut a einhverja "eyju" sem er herna og thar er einhver gamall kastali og bordudum thar og lobbudum svo heim.
fyrrakvold tha forum vid i ratleik um skolann og svædid og fundum thar allskonar efni til thess ad baka koku og endudum svo a thvi ad hvert lid bakadi koku og lobbudum svo med hana i skoginn her rett hja thar sem ad var vardeldur og allir voru ad syngja og eta koku og grilla braud i eldinum
svo var bara venjulegur skoli i dag byrjadi ad fara i tekstil tahar sem ad vid vorum ad klippa ut myndir ur blodum og setja thad a efni sem vid seinna gerum svo eitthvad med og svo for eg i motion, forum thar i bodhlaup og snu snu og endudum sov a thvi ad fara i bandyog spiludum svo bandy med gleraugu sem voru buin til ur 2 plastglosum thannig ad madur sa ekki beint fra heldur bara til hlidar .... solltid spes :)
eftir hadegi forum vid svo i sam ferd til Molls thad sem ad vid lobbudum um thar og skodudum umhverfid thar og alles sem var mjog fint thvi ad thad er buid ad vera ædislegt vedur i dag
er buin ad taka eftir thvi ad danir eru mikid fyrir thad ad vera i leikjum og allskonar svoleidis .... annad hvort a kvoldin erum vid uti i hollinni i einhverjum ithrottaleikjum (og meirihlutinn af thesssum leikjum hef eg aldrei spilad adur ) eda erum nidri i setustofunni og erum ad syngja eda fondra eda eitthvad svoleidis .
svo ad manni leidist allavega ekki herna ....
er lika buin ad vera rosa dugleg og hef farid ut ad skokka a hverju kvoldi thott ad vid seum i ithrottum og einhverjum lekjum næstum allan daginn .
Thad er einn annar islendingu i thessum skola og hun heitir Thorny og er ad nordan . Thad er rosa gotta d hafa einhvern i skolanum sem ad talar islensku, en ekkert sma skrytid lika . thar sem ad eg er talandi ensku allan daginn ( er ekki buin ad na tokum a donskunni ) og fara allt i einu ad tala islensku , madur verdur solltid ruggladur i hausnum eftir thad .
en eg ætla ekki ad vera ad hafa thetta eitthvad mikid lengra thar sem ad Adda og Hejdi ætla ad koma ad na i mig a eftir ( ætla ad vera hja theim um helgina) og eg a eftir ad taka adeins til i herberginu og svo eru leikir og svona i gangi i hollinnni nuna og eg ætla ad kikja adeins a thad lika adur en eg fer. ![]()
kv. BaraSara
Blogg 1Sara Waage
Godann daginn
ja nu hef eg akvedid ad fa mer bloggsidu og blogga eitthvad um hvad eg er ad fara ad gera her og svona eftir sma pressu fra fjolskyldu og vinum .....
kanski set eg inn myndir ef eg læri a thad einhverntimann :)
Vid mamma komum hingad til Hadsten i gærkvoldi eftir allveg otrulega langan og leidinlegan dag.
Byrjudum a thvi ad vakna rett fyrir 4 um nottina ... eda thad var eg reyndar nykomin heim eftir ad hafa verdi uti med stelpunum og mamma svaf nu heldur ekki mikid ut ad thvi ad hun var svo stressud ad eg myndi gleyma mer og koma bara ekkert heim. En svo gerdum vid okkur til og keydum ut a flugvoll og stodum i allveg nokk langri rod til ad fara ad tekka okkur inn , hitti Sindra Snæ thar allveg ofur hressann a leidinni til LONDON BABY ... hehe forum svo og verslum adeins i frihofninni og svona og kaupum okkur svo mat til ad eta a leidinni thvi vid attum ad fluga med Iceland express og fara svo beint i 4 tima lestaferd. Erum svo allveg timanlega a thvi og tokum svo eftit thvi ad korter fyrir flugtak ad thad er engin vel vid ranann okkar og thad er 3 kortera seinkunn ... tha setjumst vid bara nidur og ætlum bara ad taka thvi rolega thangad til ad vid færum . Eftir sma stund tha eru allir i thessu flugi kalladir upp a thjonustubord , vid forum thangad og lenntum i SVAKA rod og tha voru folkid ad breyta bording passanum og ollum var skipt i tvær Icelandair velar og flogid svo til DK. En ut af thessari seinkunn misstum vid af lestinni sem vid attum pontud sæti i.
Tha thurftum vid ad fara ad breyta midanum og forum svo i lestina.
Vid hoppum bara einhverstadar inn i lestina og tha vorum vid i BANDVITLAUSUM vagni i lestinni og allt lokad thannig ad vid thurftum ad hoppa ut a einhverri stod og finna retta vagninn i lestinni sem var allveg LENGST i hinum endanum. og vorum svo i lestinni i nokkra tima og komum svo til Hadsten 2 og halfum tima seinna en vid attum ad koma hingad .
Alltaf jafn gott ad koma hingad :)
Forum svo i dag til Århus og versludum sma og komum svo heim og bordudum godan mat og svo sit eg her og er ad reyna ad koma mer aftur inn i bloggheiminn .
A morgunn fer eg svo uppi skola og kem mer fyrir og svona :) vona ad thad se thradlaust net uppa heimavistinni svo ad eg geti bloggad 24/7 ;)
vona svo bradum ad thegar eg fer ad nota mina tolvu (er i tolvunni hja Oddu & Hejdi) svo ad eg geti farid ad fikta i myndum og reynt ad setja myndirnar fra Paris inna netid :)
-BaraSara
